Vorhefti Barna og menningar kemur út í vikunni. Blaðið er í þetta sinn helgað nostalgíu og yndislestri. Helga Birgisdóttir fjallar um lestur barna, skólabókasöfn og nauðsyn þess að stutt sé við yndislestur strax í æsku. Jónína Leósdóttir og Salka Guðmundsdóttir fjalla um lestur barnæskunnar og gamla vini eins og Bláskjá, Heiðu, Óla Alexander fílibommbommbomm og … Continue reading »
Aðalfundarboð
Aðalfundur IBBY á Íslandi verður haldinn fimmtudaginn 31. maí kl. 18 í húsi Rithöfundarsambandsins, Gunnarshúsi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörfÖnnur mál
Bókabrellur og bollakökur í Foldasafni
IBBY á Íslandi tekur þátt í Barnamenningarhátíð í Reykjavík með því að opna bókakaffihús í Foldasafni, laugardaginn 21. apríl klukkan 13-14. Hressum krökkum er boðið til bollakökuáts og bókaspjalls ásamt rithöfundunum góðkunnu Margréti Örnólfsdóttur og Þorgrími Þráinssyni. Allir velkomnir!